18. febrúar 2008 klukkan 11:05


Ég hef ákveðið að byrja að blogga aftur... Hversu öflugur bloggari ég verð mun tíminn einn leiða í ljós en þetta mun vera c.a. átjánda skiptið sem ég "byrja" aftur.
Það sem mig langar að gera að fyrsta umfjöllunarefni mínu er heimasíða sem allir ættu að kynna sér,
www.kindur.is. Eigandi og stofnandi síðunnar er vinkona mín hún Hlédís Sveinsdóttir.
Í stuttu máli er tilgangur síðunnar að gefa fólki tækifæri á að fóstra og/eða eignast kind í einni af sveitum landsins gegn vægu gjaldi. Það er þó óhætt að segja að maður fái eitthvað fyrir peninginn því með greiðslu árgjalds fær maður að heimsækja kindina nokkrum sinnum á ári, maður má nýta ullina af henni, skíra hana o.s.frv.
Fyrir utan það hversu sniðug þessi hugmynd er þá er tilgangurinn líka ákaflega göfugur, en eins og segir á heimasíðunni "
Með auknu aðgengi að sveit, vonumst við til þess að skilningur almennings aukist á mikilvægi þess að halda sveitum landsins í byggð."
Ég var einu sinni stuðningsforeldri fyrir lítinn dreng í Uganda. Fékk af og til sendar einkunnirnar hans. Hann var lélegur í stærðfræði, betri í öðru. Það var ágætt að styðja Shalifu Nsubuga og ég er ekki frá því að mér hafi fundist ég vera betri manneskja fyrir vikið. Gallinn þó við að styðja lítinn dreng í Uganda er sá að maður fær ekki að hitta hann og má ekki senda honum gjafir. Auk þess vantaði iðulega á hann skófatnað á þeim myndum sem ég fékk af honum, það sárnaði mér.
Ég ætla ekki að ganga svo langt að segja að kindur.is sé hin íslenska ABC barnahjálp en ef einhver telur að það að fóstra kind og styðja gott málefni geti látið viðkomandi líða eins og betri manneskju þá er tilganginum náð. Svo er tilhugsunin um að liggja undir teppi af uppáhalds kindinni sinni líka bara svo skemmtileg. Ég legg því til að sem flestir kynni sér heimasíðuna og skoði kindurnar sem í boði eru. Það ættu allir að eiga eina !